Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 431. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 1030  —  431. mál.




Nefndarálit



um frv. til l. um sameiningu Kennaraháskóla Íslands og Háskóla Íslands.

Frá meiri hluta menntamálanefndar.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Guðmund Árnason ráðuneytisstjóra, Val Árnason skrifstofustjóra og Helgu Þórisdóttur lögfræðing frá menntamálaráðuneyti, Ólaf Proppé rektor og Guðmund Ragnarsson framkvæmdastjóra frá Kennaraháskóla Íslands, Þórð Kristinsson, sviðstjóra kennslusviðs Háskóla Íslands, Rögnvald Ólafsson, dósent í raunvísindadeild Háskóla Íslands, Sigurð Örn Hilmarsson og Ásgeir Runólfsson frá stúdentaráði Háskóla Íslands, Sigurð G. Ólafsson og Daníel Geir Moritz frá stúdentaráði Kennaraháskóla Íslands, Torfa Hjartarson og Stefán Bergmann frá kennarafélagi Kennaraháskóla Íslands, Gísla Sigurðsson frá Félagi háskólakennara við Háskóla Íslands, Gísla Má Gíslason, Þórólf Þórlindsson og Jón Torfa Jónasson frá Félagi prófessora við Háskóla Íslands, Elnu Katrínu Jónsdóttur frá Kennarasambandi Íslands, Ingu Dóru Sigfúsdóttur frá Háskólanum í Reykjavík og Ólaf Þ. Harðarson prófessor og Kristínu Ingólfsdóttur rektor frá Háskóla Íslands.
    Frumvarpið var sent til umsagnar og bárust umsagnir frá Háskóla Íslands, háskólaráði Kennaraháskóla Íslands, kennarafélagi Kennaraháskóla Íslands, deildarráði grunndeildar Kennaraháskóla Íslands, stúdentaráði Kennaraháskóla Íslands, Jóni Torfa Jónassyni prófessor, Háskólanum á Akureyri, Byggingafélagi námsmanna, Kennarasambandi Íslands, Bandalagi háskólamanna, Félagi prófessora við Háskóla Íslands, deildarráði guðfræðideildar Háskóla Íslands, Félagi guðfræðinema við Háskóla Íslands, Félagi efna-, lífefna- og efnaverkfræðinema við Háskóla Íslands, deildarráði hjúkrunarfræðideildar Háskóla Íslands, hagfræðideild Háskóla Íslands, tækninefnd Vísinda- og tækniráðs, Félagi háskólakennara og Félagi náms- og starfsráðgjafa.
    Með frumvarpinu er lagt til að Háskóli Íslands og Kennaraháskóli Íslands sameinist undir nafni Háskóla Íslands og að lögin taki gildi 1. júlí 2008. Fram að gildistöku laganna munu háskólarnir vinna að undirbúningi að sameiningu skólanna samkvæmt sérstakri sameiningaráætlun sem unnin var af starfshópi sem skipaður var af menntamálaráðherra og fylgir frumvarpinu sem fylgiskjal I. Á fundum nefndarinnar hefur komið fram að starfshópnum sé m.a. ætlað að leggja fram tillögur um breytingar á deildar- og skoraskiptingu innan skólans. Í því sambandi ræddi nefndin um stöðu Kennaraháskóla Íslands innan Háskóla Íslands við fyrirhugaða sameiningu og meiri hlutinn leggur áherslu á að Kennaraháskóli Íslands öðlist þar sérstakan sess. Meiri hlutinn telur þó mikilvægt að starfshópurinn um skipulagsbreytingar innan Háskóla Íslands hraði störfum sínum eftir föngum svo að fyrir liggi sem fyrst hver staða Kennaraháskóla Íslands og kennaramenntunar verði innan stjórnskipulags skólans eftir sameininguna.
    Meiri hlutinn telur að margvíslegir kostir fylgi framangreindri sameiningu og má þar einkum nefna meginmarkmið frumvarpsins um að efla kennaramenntun. Samstarf og sérfræðiþekking nýtist báðum háskólunum og efli þar með og styrki starfsemi þeirra. Við sameininguna hafi háskólarnir þá tækifæri til að samþætta og skapa aukna möguleika fyrir rannsóknir á sviði uppeldis- og menntunarfræða. Því er ljóst að samlegðaráhrif verða mikil við sameiningu þessara háskóla.
    Meiri hlutinn leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.

Alþingi, 26. febr. 2007.



Sigurður Kári Kristjánsson,


form., frsm.


Sigurrós Þorgrímsdóttir.


Svanhvít Aradóttir.



Kjartan Ólafsson.


Sæunn Stefánsdóttir.